Halldór vissi en ekki aðrir starfsmenn Landsbankans

Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, bankastjórar Landsbankans
Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, bankastjórar Landsbankans mbl.is

Starfsmönnum sem annast viðskipti með skuldabréf af hálfu Landsbankans var alls ekki kunnugt um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í síðustu viku fyrr en fréttir þar um voru birtar opinberlega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Landsbankanum.

Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjóra, bárust upplýsingar um að væntanleg væri yfirlýsing um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar um kl. 15.00 þann 19. júní s.l. sem formanni stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).

„Í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun varðandi sölu Landsbankans á íbúðabréfum í aðdraganda þess að kynntar voru breytingar af hálfu ríkisstjórnar Íslands á Íbúðalánasjóði vill Landsbanki Íslands hf. koma eftirfarandi á framfæri.
 
Starfsmönnum sem annast viðskipti með skuldabréf af hálfu Landsbankans var alls ekki kunnugt um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrr en fréttir þar um voru birtar opinberlega. Farið hefur verið yfir sögu viðskipta bankans með skuldabréf þennan dag og engar óeðlilegar hreyfingar koma þar fram. Einungis fern viðskipti voru með íbúðabréf eftir kl. 15.00 þennan dag og í öllum tilvikum var þar um að ræða viðskipti sem byggjast á hlutverki Landsbankans sem viðskiptavaka með viðkomandi bréf. Landsbankinn hafði þannig ekki frumkvæði að sölu umfram það að setja fram tilboð á markaði í samræmi við samning milli bankans og Íbúðalánasjóðs um viðskiptavakt.
 
Halldóri J. Kristjánssyni bárust upplýsingar um að væntanleg væri yfirlýsing um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar um kl. 15.00 þann 19. júní s.l. sem formanni stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Hann taldi rétt að gera öðrum stjórnarmönnum aðvart um þessar breytingar og bað Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóra SFF að annast útsendingu til þeirra. Öðrum stjórnarmönnum var gert aðvart um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar með tölvupósti sem sendur var kl. 15.36 eða sex mínútum eftir að markaði með skuldabréf og hlutabréf var lokað.
 
Af ofangreindu er ljóst að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hafði engin áhrif á ákvarðanir starfsmanna Landsbankans um viðskipti með íbúðabréf og engin óeðlileg viðskipti áttu sér stað af hálfu Landsbankans," samkvæmt yfirlýsingu frá Landsbankanum.
 
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK