Viðskipti
| mbl
| 30.6.2008
| 20:08
| Uppfært
20:48
Uppsagnir hjá Sterling
Flugvél Sterling. mbl.is/Júlíus
Lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Northern Travel Holding, hyggst segja upp 200 manns og fækka ferðum vegna hækkandi eldneytisverðs. Jafngildir þar um 20% fækkun starfsfólks, og niðurskurður á áætluninni verður 14%. Félagið hefur einnig hækkað fargjöld.
NTH er í eigu Fons hf. og FL Group, en félagið á m.a. Iceland Express.
Talsmaður flugmanna félagsins segir þetta ekki koma á óvart. „Líkt og öll önnur flugfélög verðum við að laga okkur að kreppuástandinu. Það er ekki stjórnendunum að kenna að olíuverðið er svona hátt.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















