Spá um lækkun íbúðaverðs stendur óhögguð
mbl.is
Gangi spáin eftir mun hækkun húsnæðisverðs umfram almennt verðlag undanfarin fimm ár ganga að mestu leyti til baka. Verð yrði þó ekki lágt í sögulegu samhengi og u.þ.b. í langtímajafnvægi sínu, að því er fram kemur í Peningamálum Seðlabanka Íslands. „Spá Seðlabankans í síðasta hefti Peningamála um u.þ.b. 30% lækkun íbúðaverðs að raunvirði vakti hörð viðbrögð. Í spánni var gert ráð fyrir að húsnæðisverð færi niður í áætlaða jafnvægisstöðu á næstu þremur árum.
Var þar tekið mið af mikilli hækkun íbúðaverðs umfram almennt verðlag undanfarin ár, horfum um lækkun ráðstöfunartekna, þrengingum á lánamörkuðum og offramboði íbúðarhúsnæðis. Ekki var gert ráð fyrir að verðið færi niður fyrir áætlaða jafnvægisstöðu eins og gerðist í samdrættinum á tíunda áratugnum.
Ör hækkun íbúðaverðs umfram almennt verðlag hefur verið alþjóðlegt fyrirbrigði. Núverandi tímabil hækkandi húsnæðisverðs í heiminum hefur verið um tvöfalt lengra en að meðaltali í fyrri uppsveiflum og hækkunin er þrefalt meiri," að því er segir í Peningamálum.
Efast um skynsemi þess að auðvelda húsnæðiskaupendum að skuldsetja sig frekar
Hinn 19. júní tilkynnti ríkisstjórnin um aðgerðir er miða að því að liðka um fyrir fjármögnun á íbúðamarkaði, m.a. með hækkun hámarkslána, afnámi viðmiðunar við brunabótamat og útgáfu nýrra skuldabréfaflokka til þess að fjármagna ný og eldri húsnæðisveðlán innlánsstofnana.
Vafi er á að skynsamlegt sé að auðvelda fleiri húsnæðiskaupendum að skuldsetja sig meira á sama tíma og hjöðnun húsnæðisverðbólunnar er að hefjast.
Sterkari rök væru fyrir aðgerðum af þessu tagi eftir að íbúðaverð hefur lækkað umtalsvert til að koma í veg fyrir meiri lækkun en efnahagsleg skilyrði réttlæta. Líklega munu þessar aðgerðir þó ekki hafa veruleg áhrif á heildaraðlögun íbúðaverðs að langtímajafnvægi, þótt hugsanlegt sé að þær seinki þeim aðeins.
Í versta falli gætu þessar aðgerðir leitt til þess að fleiri verði í þeirri stöðu að verðmæti eignar hafi fallið niður fyrir verðmæti láns eftir nokkur ár en ella, að því er segir í Peningamálum Seðlabanka Íslands.



















