Eignir lífeyrissjóða minnkuðu að raunvirði
Hreinar eignir lífeyrissjóða minnkuðu að raunvirði frá maílokum 2007 til sama tíma á þessu ári. Í tölum Seðlabankans kemur fram að eignir þeirra í lok maí sl. námu 1.764 milljörðum króna og höfðu aukist um 10,6% frá því ári fyrr. Verðbólga var hins vegar 12,3% á sama tíma og raunlækkun var því 1,5%.
Eignir sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkuðu um 35% á tímabilinu, en til samanburðar lækkaði úrvalsvísitalan um rúm 40%. Erlendar eignir jukust hins vegar um rúm 22%, og því voru það innlendar fjárfestingar sem drógu lífeyrissjóðina niður. Ætla má að gengisþróun krónu leiki þar stórt hlutverk.
Í Morgunkorni Glitnis segir að þrátt fyrir samdráttinn megi segja að lífeyrissjóðirnir hafi í heildina „haldið nokkuð vel sjó í mótdrægum markaðsskilyrðum undanfarið ár.“
Á tímabilinu jukust sjóðfélagalán um 28% auk þess sem skuldabréfaeign sjóðanna reyndist arðsöm.
Greining Glitnis bendir á að raungildi eigna sjóðanna hefur aukist um 12% undanfarinn áratug, bæði vegna þess að iðgjöld hafa jafnan verið hærri en lífeyrisgreiðslur, en ekki síður vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár.



















