Fjörugur dagur á Wall Street
Það ríkti engin lognmolla á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í dag. Hlutabréfavísitölur eins og Dow Jones lækkuðu mikið fyrri hluta dagsins, einkum vegna fregna af slæmri stöðu húsnæðislánafyrirtækjanna Freddie Mac og Fannie Mae. Fór Dow Jones um tíma niður fyrir 11 þúsund stig, eitthvað sem ekki hefur gerst í tvö ár.
Verð á hráolíu fór í 147,27 dali tunnan
En það voru ekki eingöngu efasemdir um stöðu húsnæðislánafyrirtækjanna sem höfðu áhrif til lækkunar heldur einnig að verð á hráolíu fór í fyrsta skipti yfir 147 dali tunnan og að fjárfestar hafa efasemdir um afkomu skráðra fyrirtækja á öðrum ársfjórðungi.
Lokaverð hráolíu til afhendingar í ágúst var 145,08 dalir tunnan á NYMEX markaðnum í New York í kvöld sem er heldur lægra en þegar hún náði sögulegu hámarki fyrir rúmri viku 145,29 dalir tunnan. Verð á tunnunni fór hæst í 147,27 dali tunnan í dag og má aðallega rekja hækkunina til vaxandi spennu á milli Írans og vesturveldanna.
Það var ekki fyrr en undir kvöld sem vísitalan fór að hækka aftur og þegar viðskiptum lauk í kauphöllinni í New York klukkan átta að íslenskum tíma nam lækkun dagsins 1,14% og er lokagildi Dow Jones 11.101,28 stig.
Nasdaq vísitalan lækkaði um 0,83% og er lokagildi hennar 2.239,08 stig og Standard & Poor's 500 vísitalan lækkaði um 1,09% og er 1.239,68 stig. Hlutabréf deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar lækkuðu um 3,23% og er lokagildi þeirra 1,20 dalur á hlut.
Hlutabréf Fannie Mae lækkuðu um 22,35% og Freddie Mac um 3,13%. Fjárfestingabankinn Lehman Brothers lækkaði um 16,59%.
Dow Jones vísitalan er nú 21,6% lægri heldur en þegar hún náði sínu hæsta gildi í október, 14.164,53 stigum. S&P hefur lækkað um 20,8% á sama tíma og Nasdaq 21,7%.



















