Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.7.2008
| 5:30
| Uppfært
9:42
Fjármálakreppan að mestu liðin hjá
Dominique Strauss-Kahn, hinn franski yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, segir mestan hluta fjármálakreppunnar vera liðinn hjá. Markaðir muni þó ekki ná sér á strik fyrr en árið 2009.
Thomson Financial fréttaveitan vitnar í orð Strauss-Kahn á ráðstefnu í Úkraínu þess efnis að þær aðgerðir sem gripið var til þess að bregðast við ólgunni á mörkuðum hafi verið hæfilegar.
Að sögn Bloomberg lagði hann einnig áherslu á nauðsyn samstillts átaks til lausnar verðbólguvandanum. sverrirth@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















