Danske ráðinn til sölu Roskilde
Roskilde Bank hefur ráðið fyrirtækjasvið Danske Bank til að aðstoða við að selja þann fyrrnefnda. Þetta er gert að kröfu danska seðlabankans sem veitti Roskilde 12 milljarða króna neyðarlán. Samkvæmt tilkynningu frá Roskilde skal bankinn seldur innan sex mánaða og helst fyrr.
Vill að ríkið taki yfir Roskilde
Frank Aaen, fjármálatalsmaður Enhedslisten í Danmörku, segir í samtali við Börsen að ef ríkið á að „borga svo mikið sem eina króna fyrir spákaupmennsku banka, hlýtur að vera skilyrði að ríkið taki yfir bankann.“Slíkt hafi verið gert í Bretlandi og Bandaríkjunum. „Annars er bara verið að tala um gefins aðstoð ríkisins við bankageirann.“
Hagnaður annarra banka sé alls ekki eitthvað sem eigi að leiða af stuðningi ríkisins við einn banka. „Þá er betra að ríkið hafi banka sem býður viðskiptavinum ódýra og skilvirka fjármálaþjónustu,“ segir Frank Aaen.
Enhedslisten er listi vinstrisinnaðra græningja í Danmörku og hefur fjóra þingmenn á sínum snærum.



















