Miklar lækkanir í Evrópu
Töluverðar lækkanir hafa verið á evrópskum mörkuðum. Breska FTSE vísitalan hefur lækkað um 2,3%, þýska Dax vísitalan um 2,4% og franska Cac 40 vísitalan um 1,8%.
Bankar hafa leitt lækkanir, í Bretlandi hefur Royal Bank of Scotland lækkað um 7,7%, Lloyds um 6,3% og Barclays um 5,7%. Í Þýskalandi hefur Deutsche Bank lækkað um 4,1% og tryggingafélagið Allianz um 6,4%. Sömu sögu er að segja af Frakklandi þar sem fjármálafyrirtækið Dexia hefur lækkað um 6,2% og Societe Generale um 3,5%.
Fjármálaskýrendur nefna vandræði bandarísku lánasjóðanna Freddie Mac og Fannie Mae sem helstu skýringar á flótta fjárfesta frá hlutabréfum.
Vestanhafs hefur Dow Jones vísitalan lækkað um 0,4%, Nasdaq um 1,2% og S&P um 0,9%.
Fyrr í dag fór gengi dollarans í sögulegt lágmark mót evru, en titringur er í fjárfestum vegna fundar og væntanlegra ummæla Ben Bernanke, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, og Henry Paulson fjármálaráðherra, nú síðar í dag. Ein evra kostar nú rúmlega 1,6 dollar.



















