Viðsnúningur hlutabréfa vestanhafs
Verðhrun á hráolíu létti brúnina á fjárfestum í Bandaríkjunum, um tíma að minnsta kosti, en sem stendur hefur Dow Jones hækkað um 0,2% og Nasdaq um 0,9%. S&P er hins vegar 0,1% lægri en við opnun markaða í morgun.
Ummæla Ben Bernanke er getið um víðan völl fjármálavefja sem ástæðu hinna miklu markaðshræringa.
Annað helsta umræðuefni fjármálaspekúlanta, bandarísku íbúðalánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac hafa þó ekki notið neinnar hækkunar, til skemmri tíma eður ei, því Fannie er 15,5% lægri en í morgun og Freddie er 13,9% lægri.
Mest lækkun í Noregi
Takmörkuð tiltrú þýskra fjárfesta setti punktinn yfir i-ið í lækkanahrinu evrópskra markaða sem hófst þó strax við opnun kauphalla. Helstu vísitölur meginlands Evrópu og Bretlands lækkuðu um 1,7-2,6, auk þess sem hlutabréf í Belgíu lækkuðu um 3,6%
Norrænu vísitölurnar lækkuðu að sama skapi allt frá 1,4% á Íslandi og í Svíþjóð, um 2% í Finnlandi, 2,6% í Danmörku og 3,9% í Noregi.



















