Engar breytingar á olíuverði

Miðlarar á olíumarkaði New York.
Miðlarar á olíumarkaði New York. AP

Olíuverð var stöðugt á mörkuðum í morgun en það lækkaði um tæpa 7 dali tunnan í gær eftir að yfirlýsingar Bens Bernankes, seðlabankastjóra Bandaríkjanna þóttu benda til þess að erfiðleikar væru framundan í bandarísku efnahagslífi sem muni leiða til minni eftirspurnar.  

Verð á hráolíu var 131,91 dalur í viðskiptum í Singapúr í morgun og hafði hækkað um 17 sent yfir daginn. Í gær voru miklar sveiflur á olíuverði á markaði í New York og fór verðið um tíma upp í 146,73 dali og niður í 135,92 dali en endaði í 138,74 dölum. Hæst komst olíuverðið í 147,27 dali á föstudag.

Í nýrri mánaðaskýrslu OPEC, sem kom út í dag, er því spáð að eftirspurn á heimsmarkaði muni aukast um  900 þúsund tunnur á dag á næsta ári sem er 100 þúsund tunnum minna en á þessu ári. Segir OPEC útlit fyrir að dragi úr hagvexti á heimsmarkaði og einnig hafi hátt olíuverð áhrif. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK