Hafna hluthafar SPRON samrunanum?
„Ég held að það sé almenn óánægja með þetta verð,“ segir Gunnar Þór Gíslason, hlutahafi og fyrrverandi stjórnarmaður í SPRON. Þá þyki ekki góður kostur að fá greitt að 60% hluta með bréfum í Exista. „En svo er spurning hvort óánægjan sé nægilega mikil til að hluthafar hafni samrunanum.“ Samruninn er háður samþykki hluthafundar sem halda á í ágúst.
Vilja markaðsvirði í vor
Samkvæmt samrunaáætlun, sem stjórnir SPRON og Kaupþings hafa samþykkt, verða greiddar sem nemur 3,83 krónum fyrir hvern hlut í SPRON, sem er markaðsvirði 30. júní 2008 að viðbættu 15% álagi.Hluthafi sem 24 stundir ræddi segist óánægður með að ekki hafi verið miðað við markaðsvirði bréfanna áður en upplýst var um samrunaviðræðurnar sem sagt var frá í lok apríl. Síðan hefur gengi bréfa í SPRON lækkað úr 5 í 3,1.
Hluthafarnir frá greitt að 60% hluta með bréfum í Exista og að 40% hluta með bréfum í Kaupþingi.
Rögnvald Othar Erlingsson, sem sagði sig úr varastjórn SPRON í síðustu viku, segir ástæðuna fyrst og fremst þá að hann sé ósáttur við verðið sem hluthafar fá verði af samrunanum.
„Það er í mínum huga óviðunandi að fá greitt að 60% hluta í Existabréfum,“ segir Rögnvald.
Hann bendir á hversu mikið þau hafi lækkað í verði að undanförnu, sem hafi komið illa við hluthafa í SPRON þar sem sparisjóðurinn á stóran hlut í Exista.
Ef horft er þrjá mánuði aftur í tímann hefur gengi bréfa í Exista lækkað úr um 12 í 6,25 eftir 5,3% lækkun félagsins í gær.
Eins og einn ósáttur hluthafi í SPRON sem 24 stundir ræddu við benti á, er Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, einnig stjórnarmaður í Exista og Erlendur Hjaltason, stjórnarformaður SPRON, einnig forstjóri Exista.
Hrein heilindi í viðræðunum
„Auðvitað er enginn hluthafi í dag í fyrirtæki ánægður með það verð sem bréfin ganga á, enda ljóst að hlutabréfamarkaðir hafa lækkað mjög mikið,“ segir Guðmundur Hauksson, um óánægju hluthafa.Hann segir ekki óeðlilegt að bréf í Exista séu boðin til hluthafa í ljósi þess að þau eru stór þáttur í fjárfestingum SPRON. Margir hafi væntingar um að þau muni hækka.
Varðandi tengsl Guðmundar við Exista segir hann menn verða að hafa í huga að ástæða þess að hann sitji í stjórn Exista sé að SPRON er hluthafi í félaginu. „Það hefur verið hlutverk mitt að gæta þessara hagsmuna. En persónulega eru mínir hagsmunir nær alfarið tengdir hlutabréfaverði í SPRON, sem ætti að sýna að það eru hrein heilindi af minni hálfu í þessum viðræðum.“
Ekki náðist í Erlend Hjaltason.



















