Viðskipti
|
Viðskipti
| mbl
| 18.7.2008
| 13:20
Hækkanir á hlutabréfamörkuðum
Viðskipti á formarkaði með hlutabréf skráð í Bandaríkjunum benda til þess að helstu hlutabréfavísitölur þar í landi muni hækka þegar kauphallirnar opna nú klukkan 13:30.
Það sem af er degi hefur Dow Jones-iðnaðarvísitalan hækkað um 0,5%, samsetta Nasdaq-vísitalan um 0,22% og S&P 500-vísitalan hefur hækkað um 0,73%.
Í Evrópu hafa helstu hlutabréfavísitölur einnig hækkað, FTSE-vísitalan í London hefur hækkað um 1,1%, DAX-vísitalan í Frankfurt um 1,6% og CAC-vísitalan í París um ríflega 1%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















