Lund leggur Nyhedsavisen til meira fé
Brynjar Gauti
Morten Lund, aðaleigandi Nyhedsavisen, mun leggja blaðinu til meira rekstarfé, að því er Lars Lindstrøm, fjármálastjóri útgáfufélags blaðsins segir við viðskiptavef Berlingske Tidende í kvöld. Þá er gert ráð fyrir að nýir fjárfestar komi að blaðinu í næstu viku.
Lindstrøm segir, að gagnrýni sjálfskipaðra sérfræðinga og keppinauta á fjölmiðlamarkaði á blaðið og Lund sé afar ósanngjörn í ljósi þess að Lund hafi lagt blaðinu til 60 milljónir danskra króna í apríl og leggi því nú til milljónir að auki úr eigin vasa.
Berlingske segir, að Lund sem á 51% hlut í 365 Media Scandinavia, útgáfufélagi Nyhedsavisen, og Stoðir Invest, sem á 49%, hafi í apríl lagt blaðinu til 117 milljónir danskra króna, jafnvirði um 2 milljarða íslenskra króna. Nú sé kassinn tómur en útgáfa blaðsins hafi kostað eigendur þess um 700 milljónir danskra króna, um 11,7 milljarða íslenskra króna, fá því það hóf göngu sína haustið 2006.
Haft er eftir Lindstrøm, að skuldbreyting 350 milljóna skuldar blaðsins í hlutafé, sem skráð var hjá danska fyrirtækjaeftirlitinu í gær, sé aðeins hefðbundin tilfærsla milli útgáfufélagsins 365 Media Scandinavia og Nyhedsavisen, sem hafi farið fram í júní.



















