Viðskipti
| mbl
| 30.7.2008
| 10:41
| Uppfært
10:59
Jónas hættir sem ritstjóri
Jónas Haraldsson hefur látið af störfum ritstjóra Viðskiptablaðsins. Þetta kemur fram á vef blaðsins. Jónas hefur starfað á Viðskiptablaðinu um árabil, fyrst sem fréttastjóri, þá aðstoðarritstjóri og síðasta árið sem ritstóri.
Á vef blaðsins segir að Jónas eigi að baki „langa og farsæla reynslu í blaðamennsku sem hann hefur miðlað örlátlega til samferðamanna á Viðskiptablaðinu. Má fullyrða að reynsla hans og innsæi hafi verið Viðskiptablaðinu drjúg stoð í því uppbyggingarstarfi sem staðið hefur yfir í hans ritstjóratíð.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















