SPRON tapaði 5 milljörðum á öðrum fjórðungi
Tap af rekstri SPRON nam 5 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 5,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Segir SPRON að neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði á öðrum ársfjórðungi hafi valdið gengistapi sem nam 4,9 milljörðum króna.
Á fyrri helmingi ársins nam tap eftir skatta var 13,5 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur námu 1,7 milljörðum króna og jukust um 56% frá sama tímabili í fyrra. Hreinar þjónustutekjur námu 581 milljónum króna og jukust um 7% samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2007.
Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar á öðrum ársfjórðungi um 3,7 milljarða króna. króna. Heildareignir eru 246,7 milljarðar króna og hafa aukist um 10% frá árslokum 2007. Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 179,8 milljörðum króna. Innlán eru 49% af heildarútlánum til viðskiptamanna og innlánaaukning var 4% frá árslokum 2007.
Eigið fé SPRONnam 13,5 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall (CAD) er 12,1%.
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri, segir í tilkynningu SPRON, að líkt og undanfarna ársfjórðunga líði afkoma SPRON fyrir óhagstæðar markaðsaðstæður. Grunnrekstur SPRON sé þó traustur og undanfarið hafi verið hagrætt í rekstri sem skili sér í rekstrarkostnaði og árangurinn muni halda áfram að koma fram eftir því sem líður á árið. Þá hafi SPRON sterka eiginfjárstöðu og traust aðgengi að lausafé og horfur því vel viðunandi þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður.



















