118.000 króna gróði á sekúndu

Bensínstöð Exxon í Richmond í Virginíu.
Bensínstöð Exxon í Richmond í Virginíu. AP

Olíufélög hagnast vel um þessar mundir. Í morgun birti hollenska félagið Shell uppgjör sem sýndi 11,6 milljarða dala hagnað á öðrum ársfjórðungi en bandaríska félagið Exxon Mobil bætti um betur og hagnaðist um 11,68 milljarða dala. Það svarar til 930 milljarða króna eða 118 þúsund króna á sekúndu.

Þetta er Bandaríkjamet í gróða á einum ársfjórðungi. Fyrra metið átti Exxon einnig, 11,66 milljarðar dala á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Afkoman nú var þó ekki eins og góð og sérfræðingar á Wall Street höfðu spáð og gengi bréfa félagsins lækkuðu um 2% í viðskiptum áður en kauphöllin á Wall Street var opnuð í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK