Viðskipti
| mbl
| 1.8.2008
| 8:33
| Uppfært
9:23
Hagnaður bankanna dregst saman
.
Hagnaður viðskiptabankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans nam samtals 35 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og dróst saman saman um 26% frá sama ársfjórðungi í fyrra þegar samanlagður hagnaður var 47,5 milljarðar króna.
Á fyrri helmingi ásins nemur hagnaður bankanna þriggja 77 milljörðum króna samanborið við 88,6 milljarða á fyrri helmingi síðasta árs. Er þetta nærri 13% samdráttur milli ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















