Viðskipti
|
Viðskipti
| mbl
| 6.8.2008
| 17:24
Litaði ekki samrunaferlið
Erlendur Hjaltason.
Erlendur Hjaltason, stjórnarformaður SPRON, fjallaði á hluthafafundi SPRON í dag um stöðu sína sem stjórnarformanns SPRON og forstjóra Exista, sem er stærsti eigandi Kaupþings. Sagðist Erlendur alla tíð hafa haft hagsmuni eigenda og viðskiptavina SPRON að leiðarljósi.
Staða hans sem stjórnarformanns SPRON og forstjóra Exista hafi ekki litað samrunaferlið. Þá hafi óháður aðili, MP fjárfestingarbanki, verið fenginn til að fara yfir samrunaáætlunina og komist að þeirri niðurstöðu að boðið kaupverð fyrir sparisjóðinn væri eðlilegt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















