Viðskipti
| mbl
| 7.8.2008
| 16:18
| Uppfært
17:36
Greitt með hlutum í Exista
„Verði samruni Kaupþings og Spron að veruleika verður hluthöfum Spron að hluta til greitt með hlutum í Existu. Fari svo að allir hluthafar Spron samþykki að fá greitt með Exista-bréfum verður um allt að 10% af hlutafé félagsins að ræða,“ segir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings.
Engin krosseignatengsl
Hann bendir á að samþykki allir hluthafar Spron að fá Exista-bréf sem hluta endurgjaldsins muni hlutur Kaupþings í Existu verða 2%, óbeint í gegnum Kistu. „Þá er ekki hægt að tala um krosseignatengsl,“ segir Jónas.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















