Eftir Snorra Jakobsson sjakobs@mbl.is
Í kjölfar samruna Kaupþings og Spron og þess að bankinn eignast ráðandi hlut í Sparisjóði Mýrasýslu (SPM) er Kaupþing orðið meirihlutaeigandi í Kistu, sem er næststærsti hluthafi Exista. Kista á 7,17% hlut í Exista. Að auki er 2,4% hlutafjár í Exista skráð á Spron. Fyrir átti Kaupþing 2,4% í Exista.
Fáist samþykki allra aðila fyrir samruna Kaupþings og Spron og kaupum Kaupþings í SPM mun Kaupþing ráða um 12% hlut í Exista. Í þessari upptalningu er ekki meðtalin eign hlutabréfasjóða Kaupþings og Frjálsa lífeyrissjóðsins í Exista.
Minna má á að Exista er stærsti hluthafi Kaupþings með 24,7% hlut og því er ljóst að krosseignatengsl eru enn töluverð. Krosseignatengsl á íslenskum fjármálamarkaði hafa einmitt oft orðið erlendum gagnrýnendum yrkisefni.
Eggið gleypir hænuna
Í þessu samhengi er athyglisvert að skoða þátt Exista í þróun undanfarinna vikna þegar Kaupþing hefur komið fram sem bjargvættur Spron og SPM. Báðir áttu sjóðirnir töluverða eign í Exista og báðir eru þeir illa leiknir eftir að gengi bréfa félagsins hefur hrunið um meira en 80% á rúmu ári. Þess má geta að ekki er mjög langt síðan Kaupþing var í eigu sparisjóða landsins.
Mikil rýrnun
Að sama skapi hefur gengishrun Exista haft áhrif á eignir sveitarfélagsins Borgarbyggðar. Verðmæti eignar sveitarfélagsins í Exista, í gegnum SPM, var um áramót um tveir milljarðar króna. Þá átti Borgarbyggð 100% hlut í SPM en gangi kaup Kaupþings á stofnfé sjóðsins mun Borgarbyggð aðeins eiga 20% hlut. Þá verður verðmæti óbeinnar eignar sveitarfélagsins í Exista 136 milljónir.
Exista og sala eigna breyttu myndinni
Spron skilaði tapi árið 2007 ef dreginn er frá gengishagnaður félagsins vegna Exista. Samkvæmt ársreikningi Spron fyrir síðasta ár voru vaxtatekjur umfram vaxtagjöld um 2,6 milljarðar og þjónustutekjur umfram þjónustugjöld 1,5 milljarðar. Samtals nam því hagnaður af þessum liðum 4,1 milljarði. Rekstrargjöld sjóðsins námu hins vegar um 5,4 milljörðum. Tap var þannig af reglulegum rekstrarliðum. Tekjur af fjáreignum og fjárskuldbindingum skiluðu Spron 4,6 milljörðum auk þess sem sala eigna skilaði 3,4 milljörðum.