Engan hug á að vinna með nýrri stjórn
Henry Paulson hefur engan áhuga á að halda stöðu sinni sem fjármálaráðherra Bandaríkjanna þegar ný forsetastjórn tekur við í janúar. Þetta kom fram í viðtali við Paulson sem var sjónvarpað á NBC stöðinni í gær. Paulson hyggst einbeita sér að því að ljúka sínum verkefnum fyrir 19. janúar.
Flokksbræður Paulson í Repúblikanaflokknum gagnrýndu hann fyrir að hallast að sósíalisma, „að ríkisvæða tapið“, vegna aðgerða hans í þágu lánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac. Paulson sagðist hins vegar ekki myndu veita meira fé til sjóðanna, að því er fram kemur í frétt Reuters.
Paulson segir að vandræði á húsnæðismarkaði munu vara langt fram yfir árið 2008. Hann vísaði því þó á bug að bandaríska hagkerfið þyrfti aðra innspýtingu eftir 152 milljarða dala aðgerðir fyrr á þessu ári.



















