Viðskipti
|
Viðskipti
| mbl
| 12.8.2008
| 15:49
„Leikur sér með Ticket“
Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu Pálma Haraldssonar, hefur keypt aftur 5,1 milljón hluta í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket. Seljandi er Northern Travel Holding en hluturinn í Ticket er ein þeirra eigna sem Fons setti inn í NTH árið 2006.
Þetta kemur fram í frétt á sænska viðskiptavefnum affarsvarlden.se en fyrirsögn fréttarinnar er „Íslendingur leikur sér með Ticket-hluti“. Þar með er Fons á nýjan leik orðinn stærsti hluthafi í Ticket, með 29,3% hlut, sem jafngildir einmitt 5,1 milljónum hluta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















