Viðskipti
| mbl
| 21.8.2008
| 18:14
Dregur úr hagnaði Atlantic Airways
Hagnaður færeyska flugfélagsins Atlantic Airways nam 6 milljónum danskra króna, jafnvirði rúmlega 98 milljóna íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaðurinn 12,5 milljónir danskra króna. Fyrri hluta ársins var 246 þúsund danskra króna hagnaður á rekstrinum samanborið við 12,5 milljónir danskra króna í fyrra.
Félagið segir, að hátt eldsneytisverð, auknar afskriftir og lækkandi hlutabréfaverð hafi haft veruleg áhrif á reksturinn. Þá hafi fyrri hluti síðasta árs verið óvenjulega hagstæður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















