Hækkun á Wall Street
Bandarískar hlutabréfavísitölur tóku hressilega við sér í dag í kjölfar þess að verð á hráolíu tók að lækka á ný og ummæla seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Ben Bernanke um að verðbólguþrýstingur myndi væntanlega ná jafnvægi. Hækkaði Dow Jones vísitalan um tæp 200 stig.
Vangaveltur um mögulega sölu á fjárfestingabankanum Lehman Brothers Holdings hafi góð áhrif á viðskipti með hlutabréf fjármálafyrirtækja. Fyrr í vikunni vöruðu sérfræðingar á fjármálamarkaði við því að bankinn þyrfti jafnvel að afskrifa verulegar fjárhæðir. En fregnir um að Þróunarbanki Kóreu (e:Korea Development Bank) væri með hugmyndir um að kaupa bankann hafði þau áhrif að mikil eftirspurn myndaðist eftir bréfum í Lehman og hækkuðu þau um 5%.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 197,85 stig eða 1,73% og er lokagildi hennar 11.628,06 stig. Standard & Poor's 500 hækkaði um 1,13% og er 1.292,20 stig og Nasdaq hækkaði um 1,44% og er 2.414,71 stig. Verð hlutabréfa deCode hækkaði um 5,22% og er lokagildi þeirra 1,21 dalur á hlut.



















