Viðskipti
| mbl
| 22.8.2008
| 15:40
Hagnaður Heklu fasteigna 75,2 milljónir króna
Hagnaður Heklu fasteigna ehf. nam 75,2 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra var félagið rekið með 8,7 milljón króna tapi. Rekstrarhagnaður, EBITDA, nam 92,1 milljón króna.
Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á tímabilinu 119 millj. kr. og rekstrargjöld námu 26,9 millj. kr.
Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru þann 30. júní 2008 bókfærðar á 2.457
millj. kr. Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 2.082,2 millj. kr. Þann
30. júní 2008 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 374,8 millj. kr. og
eiginfjárhlutfall 15,25%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















