Vilji til sameiningar vegna þrenginga
Jón Þórisson framkvæmdastjóri VBS Mbl.is
Samkvæmt heimildum 24 stunda hefur frumkvæðið að sameiningarviðræðum áðurnefndra fyrirtækja komið frá Icebank frekar en VBS eða Saga Capital. Staða VBS og Icebank er nokkru verri en Saga Capital þar sem eiginfjárhlutfall þess félags er sterkara en hinna tveggja.
Í árshlutareikningi VBS fjárfestingarbanka fyrir fyrri helming ársins kemur fram að tæplega 28 milljarðar, af 47 milljarða heildarskuldum, séu á gjalddaga innan eins mánaðar. Tæplega tveir milljarðar til viðbótar eru á gjalddaga innan þriggja mánaða, samkvæmt reikningnum.
Jón segir um 90 prósent af skuldunum sem voru á gjalddaga í byrjun júlí vera vegna endurhverfra viðskipta, en það eru lán frá Seðlabanka Íslands sem eru á gjalddaga vikulega. Lánasamningar sem VBS er með hjá Landsbanka Íslands, sem er stærsti einstaki lánveitandi VBS, hafa verið framlengdir líkt og aðrir smærri lánasamningar hjá öðrum fjármálastofnunum.



















