Viðskipti
| mbl
| 5.9.2008
| 16:03
Eimskip lækkar um 7,19%
Allar hlutabréfavísitölur lækkuðu í norrænu kauphöllunum í dag, lækkaði samnorræna vísitalan Nordic 40 mest eða um 4,15% en Úrvalsvísitalan lækkaði minnst eða um 1,52% og er lokagildi hennar 4.057,94 stig. Eimskip lækkaði um 7,19%, Exista um 6,01%, SPRON um 4,41%, Landsbankinn 2,13% og Glitnir um 2,11%. Eina félagið í Kauphöll Íslands sem hækkaði í verði er Eik banki sem hækkaði um 3,77%.
Í Ósló lækkaði vísitalan um 2,99%, Stokkhólmur 3%, Kaupmannahöfn 2,61% og Helsinki 3,77% en Nokia, sem er stærsta félagið í finnsku kauphöllinni lækkaði um 10,70% í dag í kjölfar þess að félagið tilkynnti um að markaðshlutdeild þess á farsímamarkaði myndi minnka á þriðja ársfjórðungi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















