Gengi krónunnar aldrei lægra
Gengi bandaríkjadals er komið yfir 90 krónur. mbl.is
Gengi krónunnar lækkaði í viðskiptum á millibankamarkaði í dag fimmta viðskiptadaginn í röð, og hefur aldrei verið lægra. Gengisvísitalan hækkaði um 1,7% og er 169 stig en hæst hafði vísitalan áður endað í 168,15 stigum í lok júní.
Gengi Bandaríkjadals var 90,7 krónur í lok dags, gengi evru 128,5 krónur og breska pundsins 160,2 krónur. Velta á gjaldeyrismarkaði var 52,6 milljarðar króna.
Gengi krónunnar hefur lækkað um 5% frá því á þriðjudag í síðustu viku. Í Vegvísi Landsbankans segir, að ekki sé auðvelt að segja til um hvað valdi þessari miklu veikingu en neikvæðar tölur um viðskiptajöfnuð, sem birtar voru á fimmtudag, hafi haft sitt að segja. Síðan þær tölur voru birtar hefur krónan veikst um 4,4%.



















