Viðskipti
| mbl
| 9.9.2008
| 15:53
Hlutabréf lækkuðu í dag
Hlutabréf lækkuðu umtalsvert í verði í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,47% og er 4011 stig. Bréf Bakkavarar hækkuðu um 0,39%. Bréf Eimskips lækkuðu um 8,21% eftir að hafa lækkað um rúm 16% í gær, bréf SPRON lækkuðu um 5,44% og bréf Existu um 5,35%. Engin bréf hækkuðu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















