Viðskipti
| AP
| 12.9.2008
| 9:48
Hækkun í Tókýó
Nikkei vísitalan rétti heldur úr kútnum í Kauphöllinni í Tókýó í dag en vísitalan hækkaði um 0,93% og er 12.214,76 stig. Skýrist hækkunin einkum af hækkun á verði fjármálafyrirtækja en í gærkvöldi var greint frá því að bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Brothers yrði væntanlega seldur. Meðal hugsanlegra kaupenda eru Bank of America, Nomura Securities, BNP Paribas, Deutsche Bank og Barclay's bankinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















