Kærir Morten Lund til lögreglu
Per Clausen, þingmaður Einingarlistans í Danmörku, hefur kært Morten Lund, aðaleiganda Nyhedsavisen, til lögreglu. Segist Clausen gera það vegna ólöglegra samninga, sem gerðir hafi verið milli fyrirtækja Lunds og breska fjárfestingarfélagsins Mecom, sem m.a. á útgáfufélag Berlingske Tidende og Urban.
Ásakanir ganga einnig á víxl milli fyrrum stjórnenda Nyhedsavisen og Lunds, sem lýsti því yfir í byrjun september að útgáfu blaðsins væri hætt og það tekið til gjaldþrotaskipta.
Clausen fullyrðir að ólögleg viðskipti hafi farið fram milli félags, sem tengist Lund, og Mecom. Svo virðist sem Mecom hafi greitt umræddu félagi hundruð milljónir danskra króna til að tryggja, að Nyhedsavisen hætti að koma út.
Clausen segir að þessir peningar hefðu átt að renna til Nyhedsavisen svo blaðið gæti staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.
Bæði Morten Lund og David Montgomery, aðaleigandi Mecon, hafa vísað þessum ásökunum á bug. En nú hefur Lars Lindstrøm, viðskiptafélagi Lunds, staðfest við Berlingske Tindende, að lögmaður Lunds hafi útbúið tilboð til Mecom um að það félag greidd 139 milljónir danskra króna til breska félagsins Comet Media Limited fyrir ráðgjafarstörf gegn því að Nyhedsavisen yrði lokað.



















