Viðskipti
| mbl
| 14.9.2008
| 22:03
Bank of America og Merrill Lynch í eina sæng?
Bandaríska viðskiptablaðið The Wall Street Journal segir frá því á vefsíðu sinni í kvöld, að fjármálafyrirtækin Bank of America Corp. og Merrill Lynch & Co. eigi í viðræðum um hugsanlega sameiningu.
BofA hefur tekið þátt í viðræðum um hugsanlega yfirtöku á fjárfestingarbankanum Lehman Brothers Holding Inc. en hafi nú hætt þátttöku í þeim viðræðum og telji samruna við Merrill Lynch heppilegri.
Barrclays PLC hætti einnig þátttöku í viðræðum um hugsanlega yfirtöku á Lehman Brothers í dag en viðræðurnar hafa farið fram að frumkvæði bandaríska fjármálaráðuneytisins og seðlabankans. Líkur eru taldar hafa aukist á því, að Lehman Brothers óski eftir greiðslustöðvun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















