Veruleg lækkun í Evrópu
Kauphöllin í Lundúnum Reuters
Hlutabréfavísitölur hafa lækkað umtalsvert frá opnun á evrópskum mörkuðum í dag í kjölfar fregna af gjaldþroti Lehman Brothers. FTSE vísitalan í Lundúnum hefur lækkað um 2,71%, í Frankfurt hefur DAX lækkað um 2,81% og í París nemur lækkun CAC 3,44%.
Helstu hlutabréfamarkaðir voru lokaðir í Asíu í dag, í Japan, Hong Kong og Suður-Kóreu en þeir markaðir álfunnar sem voru opnir lækkuðu allir. Í Indlandi nam lækkun Senex 5,4%, í Taívan var lækkunin 4,1% og Singapúr 2,9%. Í Ástralíu nemur lækkunin 2%.
Í Kauphöllinni í Lundúnum leiða fjármálafyrirtæki lækkunina, Royal Bank of Scotland hefur lækkað um 12%, Halifax-Bank of Scotland um rúm 10% og Barclays bankinn um 6%.
Bandaríkjadalur hefur lækkað gagnvart breska pundinu og evru það sem af er degi.
Breska fjármálaeftirlitið tilkynnti í morgun áður en viðskipti hófust í kauphöllinni að lokað væri fyrir viðskipti með Lehman Brothers Holdings og tengda sjóði, svo sem Lehman Brothers Treasury Co B.V., Lehman Brothers UK Capital Funding II LP og Lehman Brothers UK Capital Funding III LP. Alls starfa um fimm þúsund manns hjá Lehman Brothers í Bretlandi.
Englandsbanki gaf einnig út yfirlýsingu um að bankinn væri að fara yfir stöðuna og myndi grípa til nauðsynlegra aðgerða ef þörf væri á til þess að koma á stöðugleika á peningamarkaði.



















