Viðskipti
| AP
| 16.9.2008
| 12:50
Hagnaður Goldman Sachs dregst saman um 71%
Hagnaður bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs dróst saman um 71% á þriðja ársfjórðungi og nam 845 milljónum dala eða 1,81 dal á hlut. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans 2,81 milljörðum dala eða 6,13 dölum á hlut. Tekjur bankans drógust saman um 51% og voru 6,04 milljarðar dala.
Er afkoman betri heldur en sérfræðingar höfðu spáð en að meðaltali hljóðaði spá þeirra sem Thomson Reuters leitaði til upp á að hagnaður á hlut næmi 1,71 dal á hlut og tekjurnar næmu 6,23 milljörðum dala.
Eftir sviptingarnar á Wall Street í gær eru einungis tveir stórir fjárfestingabankar starfandi á Wall Street,Goldman Sachs Group og Morgan Stanley.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















