Sjóðirnir selja grimmt
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Hlutur íslenskra lífeyrissjóða í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkaði um tæpa 26 milljarða í júlí á þessu ári, samkvæmt hagtölum Seðlabankans.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum skýrist þriðjungur minnkunar á endurmati, þ.e. verðrýrnunar á hlutabréfamörkuðum, en tveir þriðju í seldum hlutabréfum.
„Við sofum alveg róleg á nóttunni yfir þessum tölum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Hrafn segir að það sem skipti mestu máli fyrir rekstur lífeyrissjóða sé tryggingafræðileg staða sjóðanna til lengri tíma. „Tryggingafræðileg staða um síðustu áramót var mjög góð og hún kemur ekki til skoðunar að nýju fyrr en í vor,“ segir Hrafn.
Allar líkur á neikvæðri ávöxtun
Hrafn segir allar líkur á að ávöxtun lífeyrissjóða verði neikvæð á þessu ári þótt engar tölur liggi fyrir ennþá. „Innlendur hlutabréfamarkaður hefur verið afar slakur. Krónan hefur hins vegar veikst mjög mikið gagnvart dollar sem er aðalgjaldmiðillinn sem lífeyrissjóðirnir eiga í. Það hefur því aukið eignir sjóðanna.“Alfreð Hauksson, sjóðsstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segir að sjóðurinn hafi losað nokkurt magn af erlendum hlutabréfum í litlum þrepum samhliða veikingu krónunnar undanfarna mánuði. „Miðað við fjárfestingarstefnu höfum við verið með undirvigt í erlendum hlutabréfum undanfarin ár,“ segir Alfreð.
Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi lífeyrissjóði, segir að sjóðurinn hafi lítillega innleyst hlutdeildarskírteini í erlendum hlutabréfasjóðum í júlímánuði.
Í hnotskurn
» Hlutur lífeyrissjóða í hlutabréfum minnkaði um 26 milljarða, þar af 24 milljarða í erlendum hlutabréfasjóðum.» Landssamtök lífeyrissjóða benda á að lífeyrissjóðirnir fjárfesti til langtíma og eigi að standa af sér niðursveifluna.
» Sjóðfélagalán lífeyrissjóðanna jukust um 4,6 milljarða í júlí. Samkvæmt LL hafa lántakendur snúið sér í auknum mæli til lífeyrissjóðanna.



















