Óljóst hversu mikið tjón Straums verður

Höfuðstöðvar Lehman Brothers í Lundúnum stækka

Höfuðstöðvar Lehman Brothers í Lundúnum AP

Greiðslustöðvun Lehman Brothers mun hafa áhrif á Straum en ekki liggur ljóst fyrir hversu mikið tjónið verður en þann 15. september átti Straumur tryggingainnistæður að fjárhæð 48,2 milljónir evra í peningum og 16,8 milljónir evra í hlutabréfum hjá Lehman Brothers í Bretlandi.  Forstjóri Straums, William Fall, segir að ekki liggi ljóst fyrir hversu mikið tjón Staums verður.

„Straumur ber enga beina áhættu vegna Lehman Brothers Holdings, Inc, hvorki vegna fjárfestinga í hlutabréfum né skuldum félagsins, lánveitinga til þess né með nokkrum öðrum hætti.
 
Straumur ber hins vegar áhættu af hinu breska félagi Lehman Brothers International (Europe) ("LBIE"), einkum vegna þess að LBIE var miðlari og jafnframt gagnaðili Straums í viðskiptum með afleiður.
 
Vegna þessara viðskipta átti Straumur hinn 15. september 2008 tryggingainnistæður hjá LBIE að fjárhæð 48,2 milljónir evra í peningum og 16,8 milljónir evra í hlutabréfum. Straumur gerir kröfu um endurheimt þessara trygginga. Auk þessa gerir Straumur tilkall til hagnaðar af téðum viðskiptum að fjárhæð 6 milljónir evra sem bankinn á inni hjá LBIE. Öllum viðskiptasamningum sem að baki lágu hefur verið lokað án teljandi kostnaðar.
 
Í öðru lagi hafði Straumur selt skuldatryggingar á Lehman Brothers Holding, Inc, að hluta til í því skyni að vega upp á móti annarri áhættu af tilteknum öðrum viðskiptum, og nemur tryggingarfjárhæðin alls 29 milljónum evra.
 
Ekki liggur fyrir hvenær og enn síður hvernig farið verður með kröfur á hendur Lehman Brothers Holding og tengdum félögum. Straumur getur því ekki á þessu stigi lagt mat á hvort og þá hve mikið bankinn kann að þurfa að afskrifa vegna þessa.
 
Fyrir liggur að það mun ekki hafa teljandi áhrif á lausafjárstöðu Straums og takmörkuð áhrif á sterkt eiginfjárhlutfall bankans," að því er fram kemur í tilkynningu frá Straumi.
 
William Fall, forstjóri Straums, segir í tilkynningu: „Við höfum á undanförnum tveimur árum eða svo dregið verulega úr áhættu í efnahagsreikningi Straums með því að minnka hlutafjáreign bankans til muna. Enn fremur höfum við innleitt mjög öfluga áhættustýringu í rekstri bankans. Hvort tveggja hefur miðað að því að draga úr markaðsáhættu og gengistapi en ljóst má vera að það er ekki á okkar valdi að koma í veg fyrir að mótaðilar okkar í viðskiptum verði gjaldþrota.

Straumur stendur óvenjulega vel að vígi með um 1.100 milljóna evra eiginfjárgrunn í lok annars ársfjórðungs, 25,4% eiginfjárhlutfall samanborið við 8% lögbundið lágmark og þar með 766 milljónir evra í eigið fé á CAD-grunni umfram það sem krafist er.

Því er ljóst að bankinn ræður auðveldlega við þær afskriftir sem hugsanlega kunna að koma til. Ég legg hins vegar áherslu á að vegna óvissunnar sem uppi er, meðal annars um hugsanlega sölu á þeirri starfsemi á vegum Lehman sem Straumur átti viðskipti við, er ekki tímabært að varpa fram getgátum um hvort og þá hvert mögulegt tjón bankans kann að verða."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir