Dönskum banka bjargað

Danski seðlabankinn. stækka

Danski seðlabankinn.

Danski seðlabankinn og hópur minni banka hefur tekið saman höndum um  að bjarga Ebh Bank í Danmörku og gera þannig kleift að selja bankann eða búa í haginn fyrir samruna við annan banka. Þá hefur bankastjóranum verið vikið frá störfum.

Þetta er í annað skipti, sem danski seðlabankinn kemur dönskum banka til aðstoðar á þessu ári en í ágúst tók bankinn yfir Hróarskeldubanka.  

Ebh Bank segir í yfirlýsingu, að hann hafi síðustu vikurnar lent í erfiðleikum vegna lausafjárskorts. Hafi seðlabankinn ásamt hópi minni banka tryggt Ehn Bank nægt lausafé þannig að hann geti haldið áfram starfsemi.

Talið er að um sé að ræða um 200 milljónir danskra króna.

Bankinn hefur lent í vandræðum vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar og vegna þess að hann hefur lánað mikið til fasteignaviðskipta en danskt fasteignaverð hefur lækkað mikið að undanförnu. Ehn Bank er byrjaður að selja dótturfyrirtæki og var settur á athugunarlista í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í dag eftir að hann tilkynnti að ekki væri gert ráð fyrir hagnaði á þessu ári.

Danski fjárfestingarbankinn Saxo Bank tilkynnti í dag að verið væri að undirbúa að segja upp um þriðjungi starfsfólks. Alls vinna um 1400 manns hjá bankanum en fækkað verður um 320-340 störf.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...

Niðurfærsla samþykkt

16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Færir Advania forystu?

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Óbreytt mat hjá Moody's

Stjórnarráð Íslands.
14:23 Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Afkoma Landsnets versnar milli ára

14:32 Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 840 milljónum króna árið 2011 samanborið 3.563 milljón króna hagnað á árinu 2010. Meira »

DataMarket á Bandaríkjamarkað

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...
11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir