Viðskipti
| mbl
| 26.9.2008
| 16:09
Mikið flökt á krónunni
Reuters
Mikið flökt var á gengi krónunnar í dag. Lækkaði gengi hennar um 0,83% en þegar mest lét var það tæplega 3% lækkun frá lokun í gær. Gengisvísitalan stóð í 178,40 stigum við upphaf viðskipta en lokaði í 179,90 stigum. Hæst fór vísitalan í 184,15 stig í morgun sem er hæsta gildi hennar frá upphafi og svarar það til um 3% veikingu krónunnar frá því í gær. Þegar gengisvísitala erlendra gjaldmiðla hækkar veikist krónan og hefur krónan því aldrei verið veikari gagnvart körfu helstu mynta en í morgun.
Gengi Bandaríkjadals er 94,50 krónur, pundið er 173,90 krónur og evran er 137,95 krónur.
Veltan á millibankamarkaði nam 78,4 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















