Fortis í rússibanareið
Viðskipti með hlutabréf Fortis bankann minna helst á rússibanareið í Kauphöllinni í Amsterdam í morgun. Þegar viðskipti hófust í morgun hækkuðu bréf Fortis um 15% en í gærkvöldi var tilkynnt um að ríkisstjórnir Benelúx-landanna þriggja hefðu ákveðið að veita Fortis 11,2 milljarða evra innspýtingu til þess að bjarga bankanum. Nú hafa hins vegar bréf Fortis fallið um 19% frá lokaverði hans á föstudag.
Fjármálaráðherra Belgíu, Didier Reynders , segir að sú ákvörðun að þjóðnýta Fortis að hluta sé einungis skammtímaráðstöfun og að ríkisstjórnir Lúxemborgar, Belgíu og Hollands, hafi ekki áhuga á að eiga menn í stjórn bankans í langan tíma. „Það er klárt mál að við ætlum okkur ekki að vera hluthafar í bankanum í langan tíma," sagði ráðherrann í útvarpsviðtali við RTBF í morgun.
Samkvæmt samkomulagi sem gengið var frá í gærkvöldi munu belgísk stjórnvöld fara með 49% hlutafjár í belgíska hluta Fortis, Fortis Bank NV/SA, og leggja bankanum til 4,7 milljarða evra. Hollenska ríkisstjórnin mun taka 49% hlut í hollenska hluta bankans, Fortis Bank Nederland Holding, fyrir 4 milljarða evra og ríkisstjórn Lúxemborgar mun eignast 49% hlut í Fortis Banque Luxembourg, fyrir 2,5 milljarða evra.
Jafnframt verður Fortis gert að selja hlut sinn í ABN Amro.




















