Framkvæmdastjóri Saxbygg: Eignaupptaka

Höfuðstöðvar Glitnis.
Höfuðstöðvar Glitnis. mbl.is/ÞÖK

„Það er engin ánægja í hluthafahópi félagsins þegar svona eignaupptaka
á sér stað,“ segir Björn Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Saxbygg ehf. um þá ákvörðun að ríkisstjórnin leggia Glitni til nýtt hlutafé og eignist með því 75% hlut í bankanum.

Kvaðst hann geta tekið undir orð Þorsteins Más Baldvinssonar, stjórnarformanns Glitnis, í fjölmiðlum að menn væru hundfúlir vegna þessarar niðurstöðu en vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið á þessu stigi á meðan menn væru að ná áttum.

Saxbygg Invest er dótturfélag Saxbygg ehf. og á 5% í Glitni. Það er í sameiginlegri eigu Saxhóls sem er í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og verktakafyrirtækisins BYGG.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK