Lárus áfram bankastjóri Glitnis

Lárus Welding stækka

Lárus Welding Þorvaldur Örn Kristmundsson

Ríkið hefur farið þess á leit  við Lárus Welding, forstjóra, að hann haldi áfram störfum sínum  fyrir Glitni.  Hann hefur  fallist á  þá
beiðni.

Í tilkynningu frá Glitni kemur fram að  stjórn og stærstu hluthafar Glitnis hafa fallist á kaup ríkisins á 75% hlut í bankanum með fyrirvara um samþykki hluthafafundar.

„Fjármögnun Glitnis hefur gengið vel á þessu ári þrátt fyrir afar erfiðar markaðsaðstæður. Engu að síður hafa viðburðir síðustu tveggja vikna á bandarískum og evrópskum fjármálamörkuðum haft í för með sér
ófyrirsjáanlegar afleiðingar sem gerbreyttu forsendum skammtíma
fjármögnunar Glitnis. Í því ljósi ákvað stjórn Glitnis að óska eftir viðræðum við Seðlabanka Íslands til þess að ræða mögulegar lausnir á þeim vanda sem bankinn stóð frammi fyrir. Þær viðræður leiddu til framangreindrar niðurstöðu," að því er segir í tilkynningu Glitnis.

Tillagan var sett fram seint í gærkvöldi og var boðað til stjórnarfundar í Glitni banka í morgun. Á þeim fundi var ákveðið að ganga að henni.

Lárus Welding, forstjóri Glitnis, segir í tilkynningu: ,,Stjórn og stjórnendur bankans hafa unnið ötullega að fjármögnun bankans í ölduróti undanfarinna mánaða, en staðan versnaði til muna allra síðustu daga. Þessi innkoma ríkisins styrkir eiginfjárstöðu bankans mjög og tekur af  allan vafa um fjárhagslega stöðu Glitnis.

Við höfum séð sambærilegar aðgerðir í löndunum í kringum okkur sem
endurspeglar vel þá erfiðu stöðu sem ríkir á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þessi aðgerð hefur því miður neikvæð áhrif á núverandi hluthafa en er nauðsynleg til lengri tíma litið.

Viðskiptavinir okkar munu ekki finna fyrir breytingum og Glitnir mun áfram leggja höfuðáherslu á að veita góða og öfluga þjónustu. Ég tel mig einnig geta fullyrt að þessar aðgerðir endurspegla mikið traust stjórnvalda til Glitnis og eru mikilvægur liður í því að tryggja fjármálastöðugleika í landinu. Landslagið á íslenskum fjármálamarkaði hefur með þessu breyst. Glitnir stendur eftir sterkari en fyrr."

Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis, segir í tilkynningu: „Ég hef lagt áherslu á að auka hagræði í rekstri bankans. Mér þykir  mjög miður að við skyldum ekki komast með öðrum hætti í gegnum þennan krappa sjó eins og lagt var upp með. Þessi niðurstaða tryggir þó framtíð bankans og hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks. Það er mér mjög mikilvægt. Okkar fólk hefur unnið mjög gott starf við gríðarlega erfiðar aðstæður."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir