Ríkið eignast 75% í Glitni

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, og Lárus Welding, forstjóri, koma …
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, og Lárus Welding, forstjóri, koma af fundi í Seðlabankanum í gærkvöldi. m l.is/Golli

Gert hefur verið samkomulag milli ríkisstjórnar Íslands og eigenda Glitnis banka hf. að höfðu samráði við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið um að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé. Þetta er gert með hliðsjón af þröngri lausafjárstöðu Glitnis og einstaklega erfiðum aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum um þessar mundir.

Ríkissjóður mun með milligöngu Seðlabanka Íslands leggja Glitni til hlutafjárframlag að jafnvirði 600 milljóna evra  (eða um 84 milljarða króna) og með því verða eigandi að 75% hlut í Glitni, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Boðað verður til hluthafafundar í Glitni svo fljótt sem samþykktir leyfa þar sem tillaga þar að lútandi verður lögð fram til samþykktar.
 
Fjármálaeftirlitið metur eiginfjárstöðu og eignasafn Glitnis traust. Eiginfjárhlutfall Glitnis verður 14,5% eftir þessa aðgerð. Rekstur bankans verður með eðlilegum hætti.
 
Ríkissjóður stefnir ekki að því að eiga eignarhlutinn í bankanum til langframa. Tilgangurinn með þessari aðgerð er að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu.

Viðskipti fjármálagerninga Glitnis stöðvuð tímabundið

Fjármálaeftirlitið stöðvaði tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Glitni sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Ákvörðun þessi er tekin til að vernda jafnræði fjárfesta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK