Viðskipti
| mbl
| 29.9.2008
| 11:12
| Uppfært
11:31
Stoðir áttu 32% í Glitni
Eignarhlutur Stoða, áður FL Group, í Glitni var um 32% áður en íslenska ríkið eignaðist 75% hlut í bankanum. Að sögn Júlíusar Þorfinnssonar, yfirmanns samskiptasviðs Stoða, mun félagið ekki tjá sig um málið að svo stöddu en tilkynning verður send út síðar í dag.
Alls áttu 20 stærstu hluthafarnir tæp 67,4% hlut fyrir aðgerðirnar, sem skýrt var frá í morgun en ríkið leggur Glitni til jafnvirði 84 milljarða króna í nýju hlutafé en fær á móti 75% hlut í bankanum.
Hluthafalisti Glitnis, eins og hann er birtur á vef bankans, er eftirfarandi:
- FL GLB Holding B.V. 13,344%
- FL Group Holding Netherlands B. 11,132%
- FL Group hf 5,793%
- Þáttur International ehf 5,589%
- GLB Hedge 5,014%
- Saxbygg Invest ehf 5%
- Glitnir bank hf. 4,520
- Landsbanki Luxembourg S.A. 2,374
- Salt Investments ehf 2,321
- Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 2,180%
- Sund ehf 2,044%
- Rákungur ehf 2%
- IceProperties ehf 1,75%
- Kristinn ehf 1,705%
- LI-Hedge 1,318%
- Gildi-lífeyrissjóður 1,303%
- Icebank hf 0,957%
- Langflug ehf 0,914%
- Bygg invest ehf 0,880%
- Stím ehf 0,867%
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















