Viðskipti
| mbl
| 30.9.2008
| 10:02
Breytingar á stjórnendateymi Eimskips
Hilmar Pétur Valgarðsson, Steingrímur Sigurðsson, Ingvar Sigurðsson og Ásbjörn Skúlason hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands og verða í hópi lykilstjórnenda félagsins. Þá hefur Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs, óskað eftir því að láta af störfum en hann er að hefja mastersnám í Bandaríkjunum. Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri lögfræðisviðs mun jafnframt stýra samskiptasviði félagsins.
Guðmundur Nikulásson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri starfsemi Eimskips á Íslandi sem heyrir undir Guðmund P. Davíðsson framkvæmdastjóra Eimskips á Íslandi. Bragi Þór Marinósson verður nú framkvæmdastjóri Eimskips í Evrópu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















