Viðskipti
| mbl
| 30.9.2008
| 10:23
Gengi Bandaríkjadals 101,80 krónur
Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 2,5% það sem af er degi. Gengisvísitalan stendur í 191,50 stigum en vísitalan hefur aldrei áður farið yfir 190 stig. Upphafsgildi hennar var 186,80. Ef gengisvísitalan hækkar þá veikist gengi krónunnar. Gengi Bandaríkjadals er 101,80 krónur, pundið er 183,80 krónur og evran 146,20 krónur. Alls nemur veltan á millibankamarkaði 11,7 milljörðum króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















