Viðskipti
| AFP
| 30.9.2008
| 20:06
| Uppfært
20:47
Hlutabréf og olía hækka á ný
Hlutabréf hækkuðu umtalsvert í Kauphöllinni á Wall Street í kvöld eftir metlækkun í gær. Þá hækkaði verð á hráolíu einnig á mörkuðum beggja vegna Atlantshafs eftir að hafa lækkað um rúm 10% í gær. Er þetta rakið til þess að fjárfestar telja auknar líkur á að Bandaríkjaþing muni á endanum samþykkja björgunaráætlun fyrir fjármálakerfið.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 4,7% og er 10.850 stig. Nasdaq vísitalan hækkaði um 4,97% og er 2082 stig og S&P vísitalan hækkaði um 5,28% og er 1164 stig. Gengi bréfa deCODE lækkaði um 2,5% frá því í gær og er 39 sent.
Verð á hráolíu hækkaði um rúma 4 dali tunnan undir kvöld. Olíutunnan á markaði í New York kostaði 100,64 dali og Brent Norðursjávarolía 98,17 dali.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















