Kaupin í Baugi í uppnámi
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Stjórn Stoða sendi í gær frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem segir m.a. að óskað hafi verið eftir greiðslustöðvun í kjölfar „þvingaðrar yfirtöku Seðlabankans og ríkisvaldsins“ á Glitni. Ef yfirtakan verði samþykkt á hluthafafundi Glitnis láti nærri að eignarhlutir Stoða í Glitni lækki um 60 milljarða króna. Eigið fé Stoða nam um 87 milljörðum króna við lok annars ársfjórðungs og segir stjórn félagsins að fjárhagsstaða þess sé því í miklu uppnámi.
Greiðslustöðvun Stoða tengist mörgum öðrum félögum sem hafa verið hluti af Baugsveldinu, eins og sést á meðfylgjandi korti. Fyrr á árinu urðu miklar tilfærslur á eignum Baugs í kjölfar endurskipulagningar á FL Group, sem hlaut nafnið Stoðir. Áttu Stoðir að kaupa kjölfestuhlut í Baugi Group, nærri 40%, fyrir 25 milljarða króna, sem átti að greiðast með hlutabréfum í Stoðum. Samþykkja átti þau viðskipti á hluthafafundi sem Stoðir höfðu boðað í dag, en var aflýst í gær eftir að greiðslustöðvunin blasti við.
Auk hluta í Glitni eiga Stoðir hluti í Tryggingamiðstöðinni, fasteignafélaginu Landic Property, drykkjarframleiðandanum Refresco, danska brugghúsinu Royal Unibrew og fasteignafélaginu Bayrock Group.
Stoðir eru að stærstum hluta í eigu Styrks Invest, sem aftur er í eigu Gaums og Kaldbaks, fjárfestingafélags Samherja. Aðrir eigendur Stoða eru Fons, Oddaflug Hannesar Smárasonar og Materia Invest, félag í eigu Þorsteins M. Jónssonar og Magnúsar Ármanns.




















