Viðskipti
| mbl
| 30.9.2008
| 9:58
Opnað fyrir viðskipti með hlutabréf Glitnis
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að heimila á ný viðskipti með hlutabréf Glitnis í Kauphöll Íslands. Er það mat FME að ekki sé lengur til staðar sama hætta á ójafnræði fjárfesta Í kjölfar fréttatilkynningar og umfjöllunar um breytingar hjá útgefanda, m.a. um samkomulag milli hans og ríkisstjórnar Íslands um að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















