Viðskipti
| mbl
| 1.10.2008
| 19:50
Átti að misnota Seðlabankann?
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, velti því fyrir sér í fréttum Ríkisútvarpsins hvers vegna forsvarsmenn
Glitnis hafi leitað eftir þrautavaraláni hjá Seðlabankanum ef ekki var
búið að ganga úr skugga um hvort aðrar leiðir væru færar. Slíkt jaðri
við misnotkun á Seðlabankanum.
Bæði Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis og Jón
Ásgeir Jóhannesson hafa sagt að kaup ríkisins á 75% hlut í Glitni hafi
verið óvenju harkaleg aðgerð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















