Viðskipti
|
Viðskipti
| mbl
| 1.10.2008
| 20:23
Lækkanir á mörkuðum vestra
Hlutabréf í Bandaríkjunum mjökuðust niður á við í gær, en í frétt Wall Street Journal segir að fjárfestar hafi enn áhyggjur af framgangi björgunaráætlunar ríkisstjórnarinnar og efnahagsástandi almennt í Bandaríkjunum.
Dow Jones vísitalan lækkaði um 0,16%, Nasdaq um 1,07% og S&P 500 vísitalan um 0,45%. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði töluvert í gær. Verð á Brent norðursjávarolíu lækkaði um 2,39% og stóð í 95,11 dölum á fatið við lokun markaða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















